Leggur til að ekki sé skylt að eyða fósturvísum

Áformað er að breyta ákvæðum laganna með þeim hætti að …
Áformað er að breyta ákvæðum laganna með þeim hætti að ekki sé skylt að eyða fósturvísum við ákveðnar aðstæður. Thinkstock/Getty Images

Heilbrigðisráðherra hef­ur lagt fram áform um lagasetningu í samráðsgátt sem snúast um breytingar á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Áformað er að breyta ákvæðum laganna með þeim hætti að ekki sé skylt að eyða fósturvísum við ákveðnar aðstæður.

Í gildandi lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna segir: „Nú er hámarksgeymslutími fósturvísa ekki liðinn en par sem samþykkti geymslu fósturvísanna slítur hjúskap eða óvígðri sambúð sinni og skal þá eyða fósturvísunum. Sama gildir ef annar aðilinn andast nema um gjöf kynfrumna til notkunar við tæknifrjóvgun hafi verið að ræða.“

Upplýst samþykki

Í áformunum segir að þetta orðalag geri ráð fyrir að par sem samþykkir geymslu fósturvísa hafi hvort um sig lagt til kynfrumur sem urðu að fósturvísum.

Þá segir að löggjafinn hafi ekki gert ráð fyrir því að staðan yrði önnur ef einungis annar aðilinn leggur til kynfrumur eða að réttarstaðan breytist ef aðstæður breytast.

Heilbrigðisráðherra leggur því fram frumvarp, sem breytir ákvæðum laganna með þeim hætti að ekki skuli eyða fósturvísum ef fyrir liggur upplýst samþykki aðila um að slíkt skuli ekki gera.

„Um er að ræða mikið réttlætismál og ríkir hagsmunir standa til þess að þessu verði breytt sem allra fyrst. Við vinnuna verður hugað að annarri löggjöf sem breytingin gæti haft áhrif á, eins og erfðalöggjöf,“ segir í samráðsgátt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert