Taka á móti allt að 1.500 flóttamönnum

Frá undirritun samningsins í gær.
Frá undirritun samningsins í gær. mbl.is/Óttar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í gær samning um samræmda móttöku flóttafólks í Reykjavík.

Samningurinn var undirritaður í Ráðhúsi Reykjavíkur og kveður á um að Reykjavíkurborg taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 1.500 flóttamönnum á tímabilinu 1. október 2022 til 31. desember 2023.

„Markmiðið með samræmdri móttöku flóttafólks er að tryggja flóttafólki samfellda og jafna þjónustu óháð því hvaðan það kemur sem og óháð því í hvaða sveitarfélagi það býr. Lögð er áhersla á nauðsynlega aðstoð við fólk til að vinna úr áföllum og að það fái tækifæri til virkrar þátttöku í samfélaginu, svo sem með atvinnu, námi, þ.m.t. íslenskunámi, og samfélagsfræðslu,“ segir í tilkynningu.

Samræmda móttakan nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hér á landi.

mbl.is/Óttar

„Stórt skref hefur nú verið stigið í móttöku flóttafólks hér á landi. Samstarfið við Reykjavíkurborg hefur verið einstaklega gott og vert er að óska borginni til hamingju – og sömuleiðis óska borgarbúum til hamingju með þá góðu viðbót sem mannlífið í borginni nú fær,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra í tilkynningunni.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri bætir við: „Innrás Rússa í Úkraínu er hörmuleg og hefur sent milljónir fólks á vergang og flótta. Borgarstjórn hefur verið samstíga í því að fordæma innrásina og sameinast um að borgin taki virka þátt i móttöku flóttafólks. Það er mjög jákvætt að samningar um móttökuna séu nú í höfn og að við stöndum saman um að bjóða flóttafólk og flóttabörn velkomin og vinnum að því að þau verði hratt og vel hluti af samfélaginu okkar hér í Reykjavík. Þessir samningar eru gott skref að því marki.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert