Hafa selt 27 milljónir bóka

Spennusagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson og Arnaldur Indriðason hittust á …
Spennusagnahöfundarnir Yrsa Sigurðardóttir, Ragnar Jónasson og Arnaldur Indriðason hittust á bókmenntahátíðinni Iceland Noir.

Þrír vinsælustu íslensku spennusagnahöfundarnir eiga orðið stóran hóp aðdáenda um allan heim og selja bækur sínar í stóru upplagi. Arnaldur Indriðason trónir á toppnum hvað sölu varðar en hann hefur alls selt 18 milljónir bóka á ferli sínum sem spannar aldarfjórðung.

Kort/mbl.is

Yrsa Sigurðardóttir hefur nú selt um 5,8 milljónir bóka á heimsvísu og Ragnar Jónasson hefur selt 3,4 milljónir eintaka. Þegar allt er talið hafa þessir þrír höfundar selt ríflega 27 milljónir eintaka af bókum sínum á heimsvísu, þar af sjö milljónir síðustu þrjú ár. 

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert