Breska sendiráðið varar við skemmtanalífinu

Breska og bandaríska sendiráðið hafa varað ferðalanga við miðborg Reykjavíkur …
Breska og bandaríska sendiráðið hafa varað ferðalanga við miðborg Reykjavíkur útaf átökum milli hópa. mbl.is/Ari

Breska sendiráðið á Íslandi varar breska ríkisborgara á leið til Íslands við skemmtanalífinu í miðborg Reykjavíkur vegna átakanna sem hafa átt sér stað milli glæpahópa síðastliðna viku.

Í tilkynningu sem birtist á Facebook-síðu sendiráðsins kemur fram að þjófnaður og andfélagsleg hegðun geti átt sér stað, sérstaklega í kringum bari þar sem fólk safnast saman seint að kvöldi til í miðborginni. Þá er líka minnst á stunguárásina á Bankastræti Club sem átti sér stað síðasta fimmtudag.

Eru ferðalangar hvattir til að vera á varðbergi og gera varrúðarráðstafanir. 

Skjáskot með skilaboðum hafa verið í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi hefndarárás í miðborginni næstu helgi. Ekki liggur fyrir hve trúverðug þessar hótanir eru en lögreglan í höfuðborginni rannsakar það nú. Embættinu þykir þó ekki tilefni til þess að hvetja fólk til þess að halda sig frá skemmtanalífinu.

Fyrr í dag setti banda­ríska sendi­ráðið á Face­book-síðu sína viðvör­un til banda­rískra rík­is­borg­ara um að fara var­lega í miðbæ Reykja­vík­ur núna um helg­ina. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert