Reyksprengju kastað inn á skemmtistað í nótt

Lík­legt er að árás­in teng­ist deil­um vegna stungu­árás­ar­inn­ar í Banka­stræti …
Lík­legt er að árás­in teng­ist deil­um vegna stungu­árás­ar­inn­ar í Banka­stræti Club í síðustu viku. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Reyksprengju var kastað inn á skemmtistaðinn Paloma við Naustina í miðbæ Reykjavíkur í nótt. 

Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir að rúða hafi verið brotin og nokkurn reyk hafi lagt þar út. 

Hann telur að enginn hafi verið inni á staðnum er atvikið átti sér stað. 

Í gærnótt var tveimur eld- og reyksprengjum kastað í hús, annars vegar í Hafnarfirði og hins vegar í Fossvogi. 

Lík­legt er að árás­in teng­ist deil­um vegna stungu­árás­ar­inn­ar í Banka­stræti Club í síðustu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert