Segja forsendur vera brostnar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. mbl.is/Kristinn Magnússon

Verslunarmannafélag Reykjavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna kjaraviðræðna við Samtök atvinnulífsins þar sem segir að forsendur fyrir áframhaldandi viðræðum hafi verið brostnar vegna vaxtahækkunar Seðlabankans í vikunni.  

VR lýsti því yfir í gærkvöldi að ekki hafi náðst árangur í viðræðunum en kjaraviðræðurnar hafa verið hjá ríkissáttasemjara frá 14. nóvember og voru vonir bundnar við að landa mætti skammtímasamningum. 

VR segist ekki hafa skynjað neinn vilja hjá samninganefnd SA til að hækka tilboð SA. 

Yfirlýsing VR:

„VR lýsti í gærkvöldi, fimmtudaginn 24. nóvember 2022, yfir árangursleysi í kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins. Stéttarfélögin vísuðu kjaraviðræðum við SA til ríkissáttasemjara þann 14. nóvember sl. Viðræður síðan þá hafa snúist um gerð kjarasamnings til skamms tíma með áherslu á launaliðinn og það markmið að ná niður verðbólgu og lækka vexti.

Viðræður hafa þokast í rétta átt síðustu daga en nú er ljóst að forsendur fyrir áframhaldandi samtali eru brostnar. Ákvörðun Seðlabanka Íslands um að hækka stýrivexti í 6%, setti viðræður í uppnám og tilboð SA um launahækkanir hingað til standa engan veginn undir hækkunum verðlags og vaxta sem dunið hafa á launafólki í landinu. Frekari hækkanir eru nú fyrirsjáanlegar.

Viðræðunefnd VR gat ekki skynjað nokkurn vilja hjá samninganefnd SA um að hækka sitt tilboð frá því sem boðið var þegar deilunni var vísað til Ríkissáttasemjara og því enginn sjáanlegur tilgangur í því að halda viðræðum áfram að óbreyttu.

Yfirlýsing um árangursleysi viðræðna felur í sér að VR mun nú kynna ákvörðunina fyrir félagsfólki og meta næstu skref. Samkvæmt lögum ber ríkissáttasemjara að gera tilraun til að ná sáttum ef annar aðili óskar þess eða sáttasemjari telur það heppilegt. Ríkissáttasemjara ber þó ætíð að leita sátta innan 14 sólarhringa frá síðustu samningatilraunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert