Svavar til liðs við Hjálparstarf kirkjunnar

Svavar Hávarðsson.
Svavar Hávarðsson. Ljósmynd/Aðsend

Svavar Hávarðsson hef­ur hafið störf sem fræðslu- og upp­lýs­inga­full­trúi Hjálp­ar­starfs kirkj­unn­ar. Svavar hefur starfað sem blaðamaður og ritstjóri frá árinu 2006.

Svavar mun meðal annars hafa með höndum ritstjórn og útgáfu fréttablaðs, upplýsingamiðlun og samskipti við fjölmiðla, umsjón með fræðslu og skipulagningu viðburða. Hann tekur við keflinu af Kristínu Ólafsdóttur sem nú gegnir starfi verkefnastjóra erlendra verkefna hjá Hjálparstarfinu, að því er fram kemur í tilkynningu.

Sem blaðamaður í innlendum fréttum á Fréttablaðinu sinnti Svavar skrifum um fjölbreytt efni. Hann hlaut verðlaun Blaðamannafélags Íslands fyrir rannsóknarblaðamennsku árið 2011 fyrir fréttaflutning af mengun frá sorpbrennslum. Svavar söðlaði um árið 2017 og hefur starfað sem ritstjóri Fiskifrétta undanfarin fimm og hálft ár.

Svavar er með BA próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og hefur sinnt ýmsum félagsstörfum; sat meðal annars í stjórn Sagnfræðingafélags Íslands og í ritnefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur, segir enn fremur í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert