Fjórir grunaðir í tengslum við rán

Fjórir einstaklingar voru handteknir í gær vegna gruns um aðild …
Fjórir einstaklingar voru handteknir í gær vegna gruns um aðild að ráni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjórir einstaklingar voru handteknir í gær grunaðir um aðild að ráni og voru þeir allir vistaðir í fangaklefa í þágu rannsóknar málsins. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir helstu tíðindi lögreglu frá því klukkan 21 í gær.

Í dagbókinni kemur einnig fram að tilkynnt hafi verið um líkamsárás í miðbænum. Einn var handtekinn grunaður í málinu og hélt hann sína leið að lokinni skýrslutöku.

Dyraverðir í miðbænum óskuðu eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklings sem lét ófriðlega svo setja þurfti hann í tök. Einstaklingnum var síðar vísað í burtu.

Í hverfi 104 var lögregla kölluð svo til vegna ölvaðs einstaklings sem svaf ölvunarsvefni í anddyri fyrirtækis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert