Jólaandinn svífur yfir vötnum á Alþingi þar sem glæsilegt jólatré frá Skógræktarfélagi Kópavogs prýðir nú Kringlu Alþingishússins.
Það er ekki á hverjum degi sem aðaldyrnar eru opnaðar en það var þó gert í morgun til þess að koma trénu inn.
Í færslu Alþingis á Facebook kemur fram að margir hafi lagt hönd á plóg við að skreyta en á myndum sem fylgdu með sést m.a. Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, í stiga við hlið trésins með sjálfan jólatréstoppinn í hönd.