Fulltrúar Eflingar mættir til viðræðna

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fundur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hófst í húsakynnum ríkissáttasemjara klukkan 15 í dag. 

Efling mætti með fjölmenna sveit til viðræðna eins og sjá má á meðfylgjandi myndum frá Eggerti Jóhannessyni, ljósmyndara mbl.is. 

Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari.
Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrír fundir voru hjá ríkissáttasemjara í dag og á morgun verður fundað með SA og SGS, VR og LÍV. 

Mörg félög og landsambönd horfa nú til þess að gera skammtímasamninga sem myndu gilda í rúmt ár. Mikil ytri áhrif hafa sett svip sinn á efnahagslífið eftir innrás Rússa í Úkraínu og verðbólgan hefur gert vart við sig um alla Evrópu. Fyrir vikið er líklega erfiðara fyrir viðsemjendur að gera langtímasamninga á meðan ekki sér fyrir endann á stríðsátökum. 

Félagsmenn í Eflingu.
Félagsmenn í Eflingu. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert