Viðræður á þeirri leið sem búist var við

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), á fundinum í …
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), á fundinum í dag í húsi Ríkissáttasemjara. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir í samtali við mbl.is að fundur samtakanna og Eflingar í dag hafi farið vel fram. 

Hann segir að kröfugerðir í víðu samhengi hafi verið til umræðu. 

„Við ræddum þetta á tiltölulega almennum nótum. Fórum yfir valkosti og möguleika í stöðunni,“ segir Halldór. 

Telurðu að viðræður við Eflingu séu á réttri leið?

„Þetta er svona efnislega á þeirri leið sem ég taldi að viðræðurnar myndu vera eftir fjórða fund.“

Efl­ing mætti með fjöl­menna sveit til viðræðna.
Efl­ing mætti með fjöl­menna sveit til viðræðna. Eggert Jóhannesson

Líta á kjaraviðræður sem eina heild

Vil­hjálmur­ Birg­is­son, formaður Starfs­greina­sam­bands­ins (SGS), sagði í viðtali í Morgunblaðinu í dag að ekki væri hyggilegt að semja til langs tíma. 

Kæmi til greina að semja til styttra tíma við Eflingu?

„Málflutningur Samtaka atvinnulífsins var að þetta væru kjaraviðræður sem þyrfti að líta á allt sem eina heild,“ segir Halldór og bætir við að hann hafi reifað þau sjónarmið í löngu máli á fundinum í dag. 

Næsti fund­ur í kjaraviðræðunum verður á morg­un og mæta þá Sam­tök at­vinnu­lífs­ins, VR, SGS og LÍV til fund­ar hjá rík­is­sátta­semj­ara. 

Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, Halldór Benjamín og Konráð S. …
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA, Halldór Benjamín og Konráð S. Gíslason, efnahagsráðgjafi SA. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert