Bríet lækkar leigu um 30% í desember

Leigufélagið lækkar leigu um 30% í desember og 4% frá …
Leigufélagið lækkar leigu um 30% í desember og 4% frá áramótum. Ljósmynd/Aðsend

Leigufélagið Bríet hyggst gefa leigjendum sínum 30% afslátt af leigu nú í desembermánuði og verður mánaðarleiga auk þess lækkuð um 4% frá og með áramótum. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum en þetta kemur fram í  tilkynningu sem félagið sendi frá sér.

Með þessu tekur Bríet á sig um helming af hækkun vísitölu neysluverðs það sem af er árinu en leigusamningar eru almennt vísitölubundnir sem leiðir til aukins húsnæðiskostnaðar leigjenda við hraða hækkun verðlags. Leigufélagið taldi brýnt að bregðast við því erfiða efnahagslega ástandi og þeirri miklu verðbólgu sem nú ríkir og koma til móts við leigutaka sína sem verða fyrir áhrifum.

„Við vildum leggja okkar lóð á vogarskálarnar vegna þeirra miklu vísitöluhækkana sem hafa orðið á leiguverði á þessu ári. Þar sem útgjöldin okkar hafa ekki hækkað eins mikið á þessu tímabili þá töldum við rými til að fara í lækkanir á leigu. Við vildum nýta það til að aðstoða sem mest fjölskyldurnar sem leigja heimili sín af okkur. Um þessar mundir ríkir mikil óvissa í efnahagsmálum og við vitum að það er ekki gott að fara inn í jólamánuðinn, með öllum þeim útgjöldum sem honum fylgir, með fjárhagsáhyggjur," segir Ása Björg Pálmadóttir stjórnarformaður Bríetar í tilkynningu sem félagið sendi frá sér.

Bríet er sjálfstætt leigufélag sem á og rekur um 250 fasteignir í 34 sveitarfélögum allt í kringum landið. Það er í eigu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og sveitarfélaganna Fjarðabyggðar, Fjallabyggðar og Reykhólahrepps.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert