Réðst á konu með öxi fyrir framan skóla

Árásin átti sér stað í Úlfarsárdal.
Árásin átti sér stað í Úlfarsárdal.

Maður veittist að fyrrverandi konu sinni með öxi fyrir framan Dalskóla í Úlfarsárdal síðdegis í dag. Þetta staðfestir Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn í samtali við mbl.is.

Konan var flutt á spítala en er ekki talin í lífshættu, að sögn Margeirs, en aðspurður kveðst hann ekki vilja fara nánar út í líðan konunnar.

Maðurinn er í haldi lögreglu og hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir honum.

Börn sem sáu árásina

Á miðlinum vísi er því haldið fram að konan hafi verið að sækja börnin sín í skólann þegar árásin átti sér stað og að mörg vitni hafi orðið að árásinni, þar á meðal börn.

Í tölvupósti sem Helena Katrín Hjaltadóttir, skólastjóri Dalskóla, sendi til foreldra í dag sagði hún að atvikið snerti tvö börn í skólanum og hvatti hún foreldra til að sýna nærgætni í umræðu um málið.

Þá áréttaði hún að ekki hefði verið um skotárás að ræða, en svo virðist sem sögusagnir hafi sprottið upp þess efnis.

Segir Helena í bréfinu að boðið verði upp á samtal við skólasálfræðing og félagsráðgjafa í skólanum á morgun fyrir þá sem vilji nýta sér það.

Starfsfólk Úlfabyggðar brást hárrétt við í flóknum aðstæðum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við munum, eins og ávallt, gera allt til að tryggja öryggi nemenda okkar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert