SÍ semur við Klíníkina um kaup á aðgerðum

Samningur SÍ við Klíníkina í Ármúla hefur þegar tekið gildi.
Samningur SÍ við Klíníkina í Ármúla hefur þegar tekið gildi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa samið við Klíníkina um kaup á aðgerðum vegna endómetríósu, að því er segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Samningurinn hefur þegar tekið gildi en hann kveður á um að þær sem eru í brýnustu þörfinni njóti forgangs.

„Um greiðslur sjúklinga sem fá þjónustu á grundvelli samningsins gilda almennar reglur um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert