Bjartviðri norðaustantil í dag

Spákortið í hádeginu í dag.
Spákortið í hádeginu í dag. Kort/mbl.is

Spáð er sunnan 10 til 18 metrum á sekúndum og skúrum í dag. Hægari vindur og bjartviðri verður norðaustantil en stöku skúrir í kvöld. Hiti verður á bilinu 2 til 7 stig.

Á morgun verður suðlæg átt, 5-13 m/s með skúrum en léttskýjað norðaustanlands. Dregur úr vindi, styttir upp og kólnar seinnipartinn. Hiti verður á bilinu 0 til 5 stig annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert