Fáskrúðsfjarðargöng lokuð í kvöld

Fáskrúðsfjarðargöng.
Fáskrúðsfjarðargöng. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Fáskrúðsfjarðargöng verða lokuð í kvöld frá klukkan 20 til 23 vegna æfingar slökkviliðs. Hjáleið verður um Vattarnesveg á meðan æfingin stendur yfir.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Á Vestfjörðum er unnið að þrifum á Dýrafjarðargöngum til 7. desember. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.

Dýrafjarðargöng.
Dýrafjarðargöng. Ljósmynd/Baldvin
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert