Yfir þúsund börn kynnast jólahaldi Hallgríms Péturssonar

Sýningin Jólin hans Hallgríms er haldin í áttunda sinn í …
Sýningin Jólin hans Hallgríms er haldin í áttunda sinn í Hallgrímskirkju um þessar mundir. mbl.is/Árni Sæberg

Sýningin Jólin hans Hallgríms er haldin í áttunda sinn í Hallgrímskirkju um þessar mundir. Yfir þúsund leik- og grunnskólabörn í Reykjavík og nágrenni munu sjá sýninguna að þessu sinni. 

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef kirkjunnar en sýningin var fyrst haldin í Þjóðminjasafninu árið 2014 og var jólasýning Þjóðminjasafnsins það ár.

Í heimsókninni fá börnin stutta leiðsögn um kirkjuna, hitta organistann, Björn Steinar Sólbergsson, sem segir frá stærsta orgeli landsins og spilar jólalag fyrir þau.

Á sýningunni er börnunum síðan sagt frá því hvernig jólin voru fyrir 400 hundruð árum á Íslandi.

Þau fá stutta endursögn úr bókinni Jólin hans Hallgríms eftir Steinunni Jóhannesdóttur og myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar. Bókin segir frá undirbúningi jólanna hjá Hallgrími Péturssyni sem ungur drengur og fjölskyldu hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert