8 skip og þyrlusveit LHG leita skipverjans í dag

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Átta skip og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar taka þátt í leit að skipverjanum sem féll fyrir borð síðdegis í gær. 

Dregið var úr umfangi leitarinnar rétt fyrir klukkan eitt í nótt, en farið var af stað á ný þegar birta tók, eða uppúr klukkan 10 í morgun. 

Leitarsvæðið, sem er um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga, hefur verið stækkað.

Varðskipið Þór, björgunarskip Slysavarnarfélags Landsbjargar auk fiskiskipa taka þátt í leitinni. Vettvangsstjórn fer fram um borð í varðskipinu Þór. Alls eru átta skip við leit auk þess sem þyrlusveit Landhelgisgæslunnar leitar úr lofti.

Sæmilegar aðstæður eru til leitar en skyggni er takmarkað. Gert er ráð fyrir að leitað verði meðan aðstæður leyfa. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert