Fyrsti bráðalæknirinn útskrifaður

Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga, Rosemary Lea Jones, bráðalæknir, og …
Hjalti Már Björnsson, kennslustjóri bráðalækninga, Rosemary Lea Jones, bráðalæknir, og Gunnar Thorarensen, yfirlæknir sérnáms á Landspítala. Ljósmynd/Landspítalinn

Rosemary Lea Jones útskrifaðist formlega úr sérnámi í bráðalækningum á Landspítala á föstudag, fyrst allra til þess að ljúka þessu sérnámi.

Í tilkynningu á vef Landspítala kemur fram að Rosemary hafi bakgrunn sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku á Nýja-Sjálandi áður en hún hóf læknanám þar í landi. Hún hefur stundað sérnám í bráðalækningum á Landspítala frá árinu 2015.

Sérnám bráðamóttökunnar í bráðalækningum fer fram í samvinnu við Sjúkrahúsið á Akureyri og byggir á marklýsingu og framvinduskráningarkerfi frá Royal College of Emergency Medicine í Bretlandi. Námið tekur alls sex ár.

Rosmary mun starfa áfram á bráðamóttökunni auk þess að vera læknir í þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert