Óljóst um ákæru í hryðjuverkamáli

Vopn sem lögreglan lagði hald á vegna málsins.
Vopn sem lögreglan lagði hald á vegna málsins. mbl.is/Hólmfríður María

Ekki liggur fyrir hvort ákæra verður gefin út á hendur tveimur mönnum sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um skipulagningu hryðjuverka hér á landi.

„Það liggur ekki fyrir ákvörðun enn þá. Rannsókn er lokið og málið er til meðferðar hjá saksóknara,“ segir Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari í samtali við mbl.is.

Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari.
Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari. mbl.is/Árni Sæberg

Gæsluvarðhald rennur út á föstudag

Mennirnir voru í síðasta mánuði úrskurðaðir í áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald sem rennur út á föstudaginn. Þá hafa þeir setið í gæsluvarðhaldi í ellefu vikur, en að hámarki er hægt að fá gæsluvarðhaldsúrskurði í tólf vikur án þess að gefa út ákæru.

Möguleiki á gæsluvarðhaldi í viku í viðbót er því fyrir hendi en Ólafur Þór vill ekki staðfesta að farið verði fram á það. 

Spurður hvort ákæra verði tilbúin fyrir tólf vikna frestinn segir hann að sjá verði hvernig málinu vindur fram.

„Það er verið að fara yfir öll gögnin og meta þetta.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert