Geimherinn vill aðstöðu á Íslandi

Bradley Chance Saltzman hershöfðingi er yfir geimhernum.
Bradley Chance Saltzman hershöfðingi er yfir geimhernum. Ljósmynd/USSF

Geimher Bandaríkjanna (e. United States Space Force, USSF) hefur kynnt utanríkisráðuneytinu hugmyndir um að gera mælingar á jónahvolfinu svonefnda frá Íslandi. Hafa fulltrúar USSF m.a. framkvæmt vettvangskönnun hér á landi vegna mögulegrar staðsetningar á þeim tækjabúnaði sem nauðsynlegur er til rannsóknanna.

Kemur þetta fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins.

Segir þar einnig að til rannsókna á jónahvolfinu frá Íslandi þurfi að staðsetja tækjabúnað hér á landi og yrði hann starfandi án fastrar viðveru liðsmanna geimhersins. Einungis þyrfti viðveru manna til að sinna tilfallandi viðhaldi og viðgerðum.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert