Helmingur auglýsingafjár til erlendra miðla

„Gera má ráð fyrir því að verulegur hluti þeirra fjármuna …
„Gera má ráð fyrir því að verulegur hluti þeirra fjármuna sem íslenskir auglýsendur verja til birtingar auglýsinga í útlendum miðlum renni til rekstraraðila Facebook og Google." AFP

Tæplega helmingur þess fjár sem var varið til birtingar auglýsinga á síðasta ári rann til erlendra miðla.

Heildargreiðslur vegna auglýsingakaupa á árinu námu fast að 22 milljörðum króna. Þar af féllu 9,5 milljarðar króna í hlut erlendra miðla, eða 44%, á móti 12,3 milljörðum til innlendra miðla eða 54%, að því er kemur fram á vef Hagstofunnar.

Eftir samdrátt í birtingu auglýsinga í kjölfar kórónuveirufaraldursins árið 2020 jukust auglýsingaútgjöld á síðasta ári um fimmtung. Þau hafa ekki verið hærri síðan árið 2018, reiknað á föstu verðlagi.

Fjárstraumur til útlanda nær tvöfaldast á tæpum áratug

„Undanfarin ár hafa greiðslur til erlendra aðila vegna birtingar auglýsinga aukist nær samfellt. Samkvæmt gögnum um þjónustuinnflutning hafa greiðslur til erlendra aðila fyrir birtingu auglýsinga og aðra markaðsstarfsemi nær tvöfaldast á tæpum áratug og þannig farið úr tæpum fimm milljörðum króna árið 2013 í tæpa 9,5 milljarða árið 2021 reiknað á föstu verðlagi,“ segir í tilkynningunni.

„Fastlega má gera ráð fyrir því að megnið af þeirri upphæð hafi verið varið til kaupa á auglýsingum á vef. Upplýsingar um skiptingu greiðslna til einstakra aðila í þjónustuviðskiptum eru ekki fyrirliggjandi en gera má ráð fyrir því að verulegur hluti þeirra fjármuna sem íslenskir auglýsendur verja til birtingar auglýsinga í útlendum miðlum renni til rekstraraðila Facebook og Google. Hlutur þessara tveggja aðila nam 95% í greiðslukortaviðskiptum sem tóku til um helmings af heildarþjónustuinnflutningi vegna auglýsinga og skyldrar starfsemi,“ segir þar einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert