Náin tengsl réttlæta ekki aðgang að sjúkraskrá

Niðurstaða umboðsmanns var birt í dag.
Niðurstaða umboðsmanns var birt í dag.

Náin fjölskyldutengsl geta almennt ekki, ein og sér, leitt til þess að heimilt sé að veita aðgang að sjúkraskrá látinnar manneskju. Annars væri ekki mælt fyrir í lögum um það mat sem fara þarf fram þegar beiðni um slíkt berst frá nánum aðstanda.

Þetta er niðurstaða umboðsmanns Alþingis, sem birt var í dag, í máli þar sem kvartað var undan ákvörðun embættis landlæknis. Embættið hafði þar staðfest synjun Landspítala við beiðni um aðgang að upplýsingum í sjúkraskrá látins föður.

„Byggðist afstaða stjórnvalda á því að ekki hefði verið sýnt fram á svo veigamikla hagsmuni aðstandanda að undantekningarákvæði laga um sjúkraskrár ætti við í málinu,“ segir á vef umboðsmanns, þar sem málið er stuttlega reifað.

Ekki sýnt fram á nægilega ríkar ástæður

Tekið er fram að ekki hefði verið fallist á að með vísan til sögulegs og menningarlegs gildis upplýsinganna hefði verið sýnt fram á nægilega ríkar ástæður fyrir því að veita aðgang að þeim.

„Umboðsmaður rakti tildrög og tilurð ákvæðis laga um sjúkraskrár sem mælir fyrir um rétt aðstandenda til aðgangs að sjúkraskrám látinna að tilteknum skilyrðum uppfylltum,“ segir enn fremur.

„Mismunandi hagsmunir gætu ráðið úrslitum hverju sinni um hvort það ætti við. Þá benti hann á að upplýsingar um heilsufar manna njóti verndar bæði friðhelgisákvæðis stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.

Enda þótt rökstuðningur embættis landlæknis hefði mátt vera ítarlegri væru ekki forsendur til að gera athugasemdir við mat þess m.t.t. þess svigrúms sem lög gera ráð fyrir að stjórnvöld hafi við þessar aðstæður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert