„Við erum að melta stöðuna“

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sigmar Guðmundsson, nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, segir í samtali við mbl.is að enn sé verið að meta og fara yfir skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Nefndin fundaði í morgun og var skýrslan meðal annars rædd.

„Það voru engar ákvarðanir teknar. Þetta var í raun fundur þar sem var verið að fara yfir stöðu málsins og möguleg næstu skref,“ segir Sigmar og bætir við að ekki sé útilokað að fleiri gestir verði boðaðir á fund nefndarinnar.

Guðmund­ur Björg­vin Helga­son rík­is­end­ur­skoðandi sat fyr­ir svör­um nefnd­ar­inn­ar á mánudag ásamt Jarþrúði Hönnu Jó­hanns­dótt­ur sviðsstjóra. Áður höfðu full­trú­ar Banka­sýsl­unn­ar komið á fund nefnd­ar­inn­ar sem og Bjarni Bene­dikts­son fjár­málaráðherra og fleiri.

„Það var ekkert ákveðið formlega á fundinum eða eitthvað slegið af borðinu, þetta var í raun bara stöðumatsfundur.“

Sigmar segir að spurningum sé enn ósvarað um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka. „Við erum að melta stöðuna og möguleg næstu skref“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert