Íbúar beðnir um að spara vatn vegna eldsvoða

Rafmagnsskápurinn eða það sem eftir er af honum.
Rafmagnsskápurinn eða það sem eftir er af honum. Ljósmynd/Árborg

Eldur kom upp í dæluhúsi einnar af borholum Selfossveitna í Þorleifskoti í Flóahreppi í nótt og hefur viðbragðsáætlun Selfossveitna verið virkjuð. 

Frá þessu er greint á vef sveitarfélagsins Árborgar og eru íbúar hvattir til að fara sparlega með vatn. 

Í fréttinni segir að rafmagnsskápur hafi brunnið og fyrir vikið sé orkuöflun hitaveitunnar verulega skert. 

Tilkynning barst um bilun klukkan þrjú í nótt og þá varð vaktmaður eldsins var. 

„Slökkviliðið var kallað út ásamt HS veitum til að rjúfa straum á húsinu. Slökkvistarfið gekk vel en það er algjör mildi að eldurinn barst ekki í húsið, því þetta er timburhús,“ er haft eftir Sigurði Þór Haraldssyni veitustjóra á vef Sunnlenska

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert