Vilja að tapaðir frídagar færist á næsta virka dag

Samkvæmt frumvarpinu myndu frídagar sem hitta á helgi færast til …
Samkvæmt frumvarpinu myndu frídagar sem hitta á helgi færast til næsta virka dags. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Jólin 2022 eru andstæðan við brandajól. Almennir launþegar fá aðeins einn lögbundinn frídag alla jólahátíðina. Þar að auki ber gamlársdag upp á laugardag og nýársdag upp á sunnudag,“ segir Björn Leví Gunnarsson.

Hann er flutningsmaður nýs frumvarps Pírata, um að ef lögbundna frídaga beri upp um helgar færist frídagurinn á næsta virkan dag. Björn Leví segir mikilvægt að launþegar fá á hátíðarstundum eins og jólunum nægan frítíma til að verja með fjölskyldu og vinum.

Píratar hafa lagt fram frumvarp sem tryggi lögbundna frídaga. Hér …
Píratar hafa lagt fram frumvarp sem tryggi lögbundna frídaga. Hér er Björn Leví Gunnarsson, flutningsmaður frumvarpsins, í ræðustól þingsins.

Lífsgæðaaukning í svarta skammdeginu

Í fréttatilkynningu frá Pírötum er einnig haft eftir Birni Leví að trygging ákveðins fjölda lögbundinna frídaga óháð ártali yrði mikil lífsgæðaaukning, ekki síst í svartasta skammdeginu þegar fólki veitir ekki af upplyftingu.

Þá er einnig bent á að rannsóknir hafi sýnt að stytting vinnuvikunnar hafi gefist vel og ánægja og starfsfólks og afköst hafi aukist í kjölfarið.

Samkvæmt lögum um frídaga eru lögbundnir frídagar helgidagar þjóðkirkjunnar, sumardagurinn fyrsti, 1. maí, 17. júní, frídagur verslunarmanna og enn fremur aðfangadagur jóla og gamlársdagur frá klukkan 13.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert