Frost á landinu næstu daga

Búast má við frosti 0 - 9 stig.
Búast má við frosti 0 - 9 stig. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fremur kalt verður á landinu næstu daga og má búast við frosti á bilinu 0 til 9 stig. Það er ekki í kortunum að það fari að snjóa samkvæmt veðurfræðingi á Veðurstofu Íslands en búast má við éljagangi fyrir norðan, austan og jafnvel á Suðausturlandi.

Á morgun verður norðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og víða léttskýjað á morgun. Norðvestan 5-13 m/s austast og stöku él fram að hádegi en léttir síðan til, að því er seg­ir í hug­leiðing­um veður­fræðings.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert