Þétt byggt í Bankastræti

Verslunin Stella í Bankastræti.
Verslunin Stella í Bankastræti. mbl.is/Hari

Útlit er fyrir að afar þétt verði byggt neðst í Bankastræti nái bæði áform um viðbyggingu Stjórnarráðsins og nýbyggingu á lóðinni í Bankastræti 3 fram að ganga.

Eins og kom fram í Morgunblaðinu í gær lýsir forsætisráðuneytið áhyggjum af stærð hússins sem Herbertsprent ehf. hyggst reisa á bak við verslunina Stellu á lóðinni.

mbl.is/Kort

Félagið hefur um árabil barist fyrir því að deiliskipulag verði unnið fyrir lóðina. Áform þess gera ráð fyrir fjögurra hæða nýbyggingu, alls 1.173 fermetra. Forsvarsmenn Herbertsprents vildu ekki tjá sig um athugasemdir forsætisráðuneytisins í gær.

Eins og sjá má á kortinu hér að ofan skarast nýbyggingarnar tvær miðað við umrædd áform.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert