Myndavélar og tíu skilti í Reynisfjöru

Ljósaskiltið er beintengt ölduspárkerfi Vegagerðarinnar.
Ljósaskiltið er beintengt ölduspárkerfi Vegagerðarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Uppsetningu viðvörunar- og upplýsingaskilta í Reynisfjöru er lokið. Auk skiltanna var komið fyrir 300 metra langri keðju meðfram bílastæðinu sem leiðir fólk eftir göngustíg og framhjá skiltunum. Löggæslumyndavélum var komið fyrir á mastri í fjörukambinum. Myndum þaðan er streymt á varðstofu lögreglunnar á Suðurlandi á Selfossi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu.

„Við gerð skiltanna var haft að leiðarljósi að skilti eru til upplýsingamiðlunar, þar eiga upplýsingar að vera aðgengilegar og áhugaverðar, útskýra hvað er hægt að gera á staðnum en ekki bara boð og bönn þó að á öllum skiltunum séu vissulega varúðarmerkingar. Sett voru upp eitt ljósaskilti, þrjú stór upplýsingaskilti og sex leiðbeinandi skilti. Eitt upplýsingaskiltanna er um hætturnar vegna öldunnar og er það við hlið ljósaskiltisins sem er beintengt ölduspárkerfi Vegagerðarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Skiltin eru hluti af vinnu samráðshóps sem stofnaður var um öryggismál í Reynisfjöru í sumar. Í hópnum voru fulltrúar landeigenda, Lögreglunnar á Suðurlandi, Ferðamálastofu, Landsbjargar, Vegagerðarinnar og Kötlu Geopark. Kolofon annaðist hönnun og útfærslu skiltanna og gaf vinnu sína.

Ný upplýsingaskilti fyrir ferðamenn í Reynisfjöru.
Ný upplýsingaskilti fyrir ferðamenn í Reynisfjöru. Ljósmynd/Aðsend

Fjörunni skipt í svæði eftir aðstæðum

Fram kemur í tilkynningunni að Reynisfjara sé aldrei lokuð en að henni sé skipt í svæði eftir aðstæðum. Gult ljós þýðir að fólk á ekki að fara inn á gula svæðið og rautt ljós þýðir að það má ekki fara inn á rauða svæðið eða ekki lengra en að ljósaskiltinu.

„Gestir eiga þá að halda sig uppi á fjörukambinum en sjónarspilið þaðan er magnað á að horfa úr öruggri fjarlægð. Öryggisráðstafanir í Reynisfjöru eru einungis með upplýsingamiðlun. Ekki er mönnuð gæsla á staðnum, sem væri svo gott næsta skref, þó ekki væri nema á þeim dögum sem eru rauðar aðstæður. Til að fjármagna slíka gæslu þurfa landeigendur að taka sig saman og innheimta aðstöðugjald af gestum,“ segir einnig í tilkynningunni.

Með nýju ljósaskiltunum, í bland við kort og skilaboð á þremur tungumálum, er vonast til að gestir Reynisfjöru átti sig á hættunum sem leynast á svæðinu og hagi ferðum sínum eftir því.

„Skilti, sama hversu góð þau eru, stoppa ekki neinn sem ætlar sér niður í flæðarmál sama hvað — en þau eru nauðsynleg til að bægja sem flestum á örugga staði til að njóta Reynisfjöru í allri sinni dýrð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert