Átta ára dómur í skotmáli á Egilsstöðum staðfestur

Frá vettvangi skotmálsins í Dalseli á Egilsstöðum.
Frá vettvangi skotmálsins í Dalseli á Egilsstöðum. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson

Landsréttur staðfesti í dag átta ára dóm yfir Árnmari Jóhannesi Guðmundssyni fyrir að hafa skotið af byssu sinni nokkrum sinnum, meðal annars inni í húsi fyrrverandi manns sambýliskonu sinnar á Egilsstöðum í ágúst í fyrra, en þar voru einnig tveir synir hennar.

Landsréttur hækkaði einnig miskabætur sem synirnir fengu, úr einni milljón í eina og hálfa milljón til hvors.

Hafði Árnmar verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignarspjöll og vopnalagabrot, hótun, brot gegn barnaverndarlögum, brot gegn valdstjórn og hættubrot. 

Hafði játað hluta brotanna

Árnmar hafði játað hluta brotanna sem hann var ákærður fyrir en neitaði meintum ásetningi um manndrápstilraun. Árn­mar fór ölvaður og vopnaður byssu inn á heim­ili þáver­andi sam­býl­is­konu sinn­ar í Dal­seli, en þar var hún heima við með son­um sín­um tveim­ur. Þar hafði hann frammi ógn­andi til­b­urði, en at­b­urðarás­inni lauk u.þ.b. klukku­stund síðar, þegar Árn­mar fór út úr hús­inu og var skot­inn í brjóstið, en lögregla hafði fengið tilkynningu um skot­mann á heim­ili í Dal­seli sem væri vopnaður byssu. Hann var þá flutt­ur með sjúkra­flugi til Reykja­vík­ur.

Við aðalmeðferð málsins fyrir Landsrétti reyndi verjandi Árnmars að fá niðurfelldar sakir um tilraun til tveggja manndrápa, en héraðsdómur hafði fundið hann sekan um slíkt gagnvart fyrr­ver­andi eig­in­manni sam­býl­is­konu sinn­ar og á lög­reglu­manni.

Taldi verjandinn að Árnmar og lögreglan hefðu skotið af byssum sínum á nákvæmlega sömu sekúndunni og að Árnmar hafi skotið þremur skotum meðan lögreglumaðurinn hafi skotið ellefu skotum á fjórum sekúndum.

Sagði verjandinn jafnframt að vafasamt hefði verið að dæma Árnmar fyrir manndrápstilraun á manni sem var ekki á staðnum, en fyrrverandi eiginmaðurinn var ekki í húsinu þegar Árnmar kom þangað.

Árnmar gekkst við ákæruliðum um hættubrot, hótanir, húsbrot og fleira og samþykkti hann meðal annars miskabótakröfur sonanna sem voru staddir í húsnæðinu þegar hann fór þangað inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert