Versta veðrið í kvöld og nótt

Búast má við að það hvessi eftir hádegi á höfuðborgarsvæðinu.
Búast má við að það hvessi eftir hádegi á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Árni Sæberg

„Veðrið er orðið víða mjög slæmt. Það er reyndar fínt á höfuðborgarsvæðinu enn þá en eftir hádegi má ætla að það byrji að hvessa,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is.

Hann segir að helst megi búast við hvassviðri í Vesturbænum og á því svæði. 

Birgir segir það ekki koma á óvart að veðrið á höfuðborgarsvæðinu hafi hingað til verið til friðs en víða í kring er orðið mjög hvasst. 

Flest öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu hefur verið lokað, meðal annars Reykjanesbrautinni og er óvíst hvenær opnað verði aftur fyrir umferð þar. 

Viðvaranir í gildi fram á annað kvöld

Birgir segir að það megi búast við leiðinlegu veðri í dag og á morgun en gular viðvaranir eru í gildi á flest öllu landinu fram á annað kvöld. 

„Snjórinn sem kom um helgina er að valda skafrenningi víða,“ segir hann. 

„Versta veðrið verður kannski í kvöld og nótt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert