Gæsluvarðhald í stóra kókaínmálinu framlengt

Kókaín sem hollenska lögreglan gerði upptæk í timbursendingunni, samtals 99,25 …
Kókaín sem hollenska lögreglan gerði upptæk í timbursendingunni, samtals 99,25 kg. Ljósmynd/Hollenska lögreglan

Héraðsdómur hefur fallist á beiðni ákæruvaldsins um að framlengja gæsluvarðhald yfir fjórum mönnum sem tengjast stóra kókaínmálinu þar sem tilraun var gerð til að smygla tæplega 100 kg af kókaíni til landsins í timbursendingu.

Hefur gæsluvarðhaldið verið framlengt til 17. janúar.

Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn var kveðinn upp í gær en málið var þing­fest um miðjan nóvember og er aðalmeðferð þess áformuð 5., 6. og 9. janú­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert