Gæsluvarðhald framlengt til 17. janúar

Hópur grímuklæddra manna réðst inn á Bankastræti Club í síðasta …
Hópur grímuklæddra manna réðst inn á Bankastræti Club í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem liggur undir grun vegna stunguárásar á skemmtistaðnum Bankastræti Club hefur verið framlengt til 17. janúar. 

Þetta staðfesti Margeir Sveinsson aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn í samtali við mbl.is.

Maðurinn er sá eini sem enn er í varðhaldi vegna málsins en eins og frægt er voru á annan tug í gæsluvarðhaldi þegar mest lét. Fá­heyrt er að svo marg­ir sitji í gæslu­v­arðhaldi í einu og sama mál­inu.

Málið hefur vakið mikla athygli en það varðar stunguárás á Bankastræti Club í síðasta mánuði þar sem hópur grímuklæddra manna fór inn á skemmtistaðinn með miklu offorsi og réðst á þrjá menn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert