Grenndargámarnir yfirfyllast fljótt

Pappakassar og fleira rusl hafði safnast saman við gáma við …
Pappakassar og fleira rusl hafði safnast saman við gáma við Bústaðaveg í vikunni, líkt og við marga fleiri gáma í Reykjavík. mbl.is/Árni Sæberg

Grenndargámar eru á um 90 stöðum á höfuðborgarsvæðinu, flestir í Reykjavík eins og gefur að skilja. Oft eru þeir fljótir að fyllast en eftir fannfergi síðustu helgar voru þeir enn fljótari að fyllast og víða mynduðust hrúgur af pappír og öðru rusli við gámana, líkt og meðfylgjandi mynd af Bústaðavegi ber með sér.

Sveitarfélögin sjá um rekstur gámanna en fyrirtækið Terra sér um að tæma þá og koma inni- haldinu til Sorpu til endurvinnslu.

Fjölmargar ábendingar hafa borist í vikunni um yfirfulla gáma en vegna fannfergis var aðkoma að þeim erfið framan af vikunni. Ofan á allt saman bættist að annar þeirra bíla bilaði sem Terra notar við að tæma gámana.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert