Opið var í Bláfjöllum í gær í fyrsta skipti í vetur. Mikil stemning var á svæðinu og hæglætisveður lék við skíðaunnendur. Það eina sem virtist stríða skíða- og brettafólki var snjóleysi, en flestir létu það ekki á sig fá.
Ný stólalyfta, Drottning, var tekin í notkun í fyrsta skipti. Önnur ný stólalyfta, Gosi, var tilbúin en jómfrúarferðin var ekki farin í gær sökum slæms skíðafæris.