Lögreglan lýsir eftir Modestas

Modestas Antanavicius.
Modestas Antanavicius. Ljósmynd/Lögreglan

Lögreglan á Vesturlandi lýsir eftir Modestas Antanavicius, 46 ára karlmanni.

Síðast er vitað af ferðum hans í Borgarnesi laugardaginn 7. janúar, að því er segir í tilkynningu.

„Þeir sem hafa séð til hans eða vita hvar hann kann að vera niðurkominn eru beðnir að láta lögregluna á Vesturlandi vita í síma 4440300 eða setja sig í samband við Neyðarlínuna í síma 112.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert