Gróðursetja tré fyrir leikhúsmiðakaup

Frá sýningunni Blóðuga kanínan í Tjarnarbíói í fyrra.
Frá sýningunni Blóðuga kanínan í Tjarnarbíói í fyrra. Ljósmynd/María Kjartansdóttir

Leikhúsgestum í Tjarnarbíói býðst nú að kolefnisjafna leikhúsferðina þegar miði er keyptur á netinu.

Þegar miði er keyptur á Tix.is er hægt að velja að greiða 150 krónum meira til viðbótar við miðann, og rennur sá peningur óskiptur til Kolviðs sem gróðursetur tré fyrir upphæðina, að því er fram kemur í tilkynningu frá Tjarnarbíói.

Á móti mun Tjarnarbíó greiða fyrir kolefnisbindingu á öllu prentverki hússins, svo sem kynningarbæklingum, leikskrám, leikhúsmiðum og fleira.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert