Þórhildur tekur við sem þingflokksformaður

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata. mbl.is/Hákon

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur tekið við af Halldóru Mogensen sem þing­flokks­for­maður Pírata.

Þórhildur var kjörin formaður á þingflokksfundi á dögunum og var Björn Leví Gunnarsson kjörinn vara­þing­flokks­formaður.

Gísli Rafn Ólafsson gegnir enn embætti rit­ara þing­flokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert