Neyðarskýlin opin í dag og á miðvikudag

Neyðarskýlið á Lindargötu.
Neyðarskýlið á Lindargötu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Dagopnun verður í neyðarskýlunum í Reykjavík í dag. Þau verða jafnframt opin á miðvikudag, gangi spár um mikinn kulda eftir. Skýlin hafa verið opin um helgina.

Neyðaráætlun er virkjuð í rauðum og appelsínugulum veðurviðvörunum þegar fólki er almennt ráðlagt að halda sig inni við. Hún er líka virkjuð í miklu frosti, að því er kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Markmið neyðaráætlunarinnar er að tryggja að upplýsingar um slæmt veður og breyttan opnunartíma neyðarskýla berist gestum neyðarskýla og öðrum sem kunna að vera í ótryggum aðstæðum.

VoR-teyminu, stjórnendum neyðarúrræða fyrir heimilislausa, bráðamóttöku Landspítalans, lögreglu, Rauða krossinum og öðrum sem koma að þjónustu við heimilislaust fólk í Reykjavík er gert viðvart.

Alltaf er fylgst með veðurspám og tilkynningum frá almannavörnum og brugðist við í hvert sinn sem þörf er á, segir í tilkynningunni.

Hér má finna nánari upplýsingar um neyðarskýlin og aðra þjónustu við heimilislaust fólk í Reykjavík. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert