Sjö metra jólatré fór á hliðina

Tréð er nokkuð veglegt, enda um 7 metrar á hæð. …
Tréð er nokkuð veglegt, enda um 7 metrar á hæð. Það liggur nú á hlið eftir baráttu við Kára í morgun, en starfsmenn Garðabæjar munu taka tréð á mánudaginn.

Sjö metra jólatré sem komið hafði verið upp fyrir jól á hringtorgi við Bæjarbraut og Hæðarbraut í Garðabæ féll í morgun eftir baráttu við Kára. Sigurður Hafliðason, yfirmaður áhaldahúss Garðabæjar, segir í samtali við mbl.is að rokið hafi náð að taka tréð niður í þetta skiptið, en vegna fyrirbyggjandi aðgerða síðustu daga í tengslum við asahlákuna hafði frestast að taka tréð niður.

„Það var rokið sem keyrði tréð niður,“ segir Sigurður, en hann tekur fram að tréð hafi ekki haft nein áhrif á umferð og í raun liggi það bara á góðum stað núna á hringtorginu. Áformað er að sækja það á mánudaginn, en bæjarstarfsmenn verða þá einnig á fullu að ganga frá öðrum jólaskreytingum.

Spurður um stöðuna í Garðabæ vegna veðursins segir hann að starfsmenn áhaldahússins hafi notað síðustu þrjá daga í undirbúning þegar ljóst varð í hvað stefndi. „Við vorum með fyrirbyggjandi aðgerðir, 2-3 vélar í gangi og fólk að finna niðurföll. Það varð til þess að ekkert hefur farið illa,“ segir hann. „Við erum mjög sáttir með það hvernig til tókst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert