Frýs aftur víða og dimmum éljagangi spáð

Vindasamt verður víða um hádegi á morgun og þá einkum …
Vindasamt verður víða um hádegi á morgun og þá einkum sunnan til. Skjáskot/Veðurstofan

Frysta mun að nýju víða á landinu í kvöld. Þá mun hvessa og bæta í él vestan til.

Veðurstofan spáir vestanátt á morgun, 18-23 m/s, með dimmum éljum. Úrkomulítið verður austanlands.

Frost verður víða 0 til 5 stig á morgun, en allt að 5 stiga hiti allra syðst.

Á mánudag er spáð breytilegri átt, 3-8 m/s, og björtu á köflum. Frost verður 1 til 10 stig, kaldast inn til landsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert