Gunnar ráðinn slökkviliðsstjóri á Akureyri

Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar.
Gunnar Rúnar Ólafsson slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar. Ljósmynd/Akureyrarbær

Gunnar Rúnar Ólafsson hefur verið ráðinn slökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Þar segir að Gunnar sé með MSc-gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst (2021), menntaður bráðatæknir frá University of Pittsburgh School of medicine (2006) og löggildur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður.

Gunnar hefur verið starfandi varaslökkviliðsstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar frá árinu 2017.

Áður starfaði hann sem öryggisstjóri Landvinnslu hjá Samherja á Íslandi árin 2012-2017, var öryggisstjóri hjá Kötlu Seafood 2011-2012, aðstoðarvarðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar 2010-2011, slökkvliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins 2003-2010 og slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Akureyrar 1999-2003.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert