Efna til samkeppni um þróun Keldnalands

Efnt hefur verið til samkeppni um þróun Keldnalands.
Efnt hefur verið til samkeppni um þróun Keldnalands. mbl.is/Árni Sæberg

Reykjavíkurborg og Betri samgöngur ohf. hafa efnt til alþjóðlegrar samkeppni um þróun Keldnalands, 116 hektara landsvæði í austurhluta borgarinnar. 

Samkeppnin er ein sú stærsta sem ráðist hefur verið í hér á landi en með henni er verið að fara nýjar leiðir við að þróa byggð í borginni, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í stað þess að kalla eftir hönnunarlausnum, sem sýna ítarlegt heildarskipulag fyrir allt svæðið, eiga keppendur að leitast við að setja fram ramma um megininnviði, svo sem Borgarlínu og græn svæði. Þá þarf að fylgja raunhæf áætlun um þróun og uppbyggingu svæðisins og lykilhönnunarviðmið. 

Sérstaklega er lagt til að ríki og borg komist að …
Sérstaklega er lagt til að ríki og borg komist að samkomulagi um að hefja skipulagningu Keldnalands á þessu ári. Gervihnattamynd/Google

Markmið Reykjavíkurborgar er að á svæðinu rísi spennandi nútímahverfi sem byggir á vistvænum samgöngum og stuðlar að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi.

Samkeppnislýsing hefur verið birt á vef Reykjavíkurborgar. Keppendur þurfa að skrá sig inn á vefinn til þátttöku til að tryggja að allar upplýsingar varðandi samkeppnina berist þeim.

16 milljónir fyrir þann sem vinnur

Samkeppnin sem er öllum opin, fer fram í tveimur þrepum og er viðhöfð nafnleynd í báðum þrepum. Fyrra þrepi lýkur 19. apríl 2023. Gert er ráð fyrir að allt að fimm teymi verði valin til að þróa tillögur á öðru þrepi en greidd verður 50.000 evru þóknun, eða það sem nemur átta milljónum króna, fyrir vinnu hvers teymis á öðru þrepi sem lýkur 18. ágúst 2023.  Að auki verða veitt verðlaun að sömu upphæð fyrir hlutskörpustu tillöguna.

Þá verður samið um ráðgjöf við teymið á bak við tillöguna sem dómnefnd telur sterkasta að keppni lokinni. Ráðgjöfin snýst um áframhaldandi mótun þróunaráætlunar og skipulagsáætlana, að því marki sem sérþekking teymisins nýtist borginni.

Dómnefnd hefur verið skipuð fyrir keppnina og eiga þar sæti Brent Toderian og Maria Vassilakou, sem hafa sett sitt mark á Vancouver í Kanada og Vínarborg, sem eru iðulega tilnefndar í hópi lífvænlegustu borga í heimi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert