Veðurfræðingurinn horfinn af skjánum

Enginn veðurfræðingur hefur verið á skjánum að undanförnu.
Enginn veðurfræðingur hefur verið á skjánum að undanförnu.

Veðurfræðingurinn er horfinn af skjánum í veðurfréttum ríkisútvarpsins, sökum bilunar í grafískum búnaði.

Hefðbundið er að veðurfræðingar séu á skjánum þegar veðurfréttir eru fluttar og geta þeir þannig gefið betri mynd af veðurspánni.

Öllu hefðbundnari sjón, eins og landsmenn eru vanir.
Öllu hefðbundnari sjón, eins og landsmenn eru vanir.

Veðurfræðingslaust hefur verið á skjánum frá því á laugardaginn síðasta.

Samkvæmt upplýsingum frá ríkisútvarpinu er beðið eftir varahlut sem býr til grafíkina fyrir framan og aftan veðurfræðinginn, sem síðan gerir honum kleift að vera í mynd. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert