Veiran finnst í öllum landshlutum

BPIV3 er landlæg í nautgripum víðast hvar í heiminum.
BPIV3 er landlæg í nautgripum víðast hvar í heiminum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bovine Parainfluensa 3 veira (BPIV3), sem getur valdið vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum, finnst nú í öllum landshlutum. Matvælastofnun telur að um sé að ræða dulda, landlæga sýkingu sem almennt er ekki að valda veikindum í nautgripum hérlendis. Ákveðin ónæmisbæling virðist vera forsenda þess að sýkingin magnast upp og veldur sjúkdómseinkennum.

Um er að ræða veiru sem veldur vægri öndunarfærasýkingu í nautgripum. BPIV3 er landlæg í nautgripum víðast hvar í heiminum. Veikindi eru algengust í kálfum sem ekki hafa fengið næg mótefni í gegnum brodd. Sýkingin er yfirleitt væg. Helstu einkenni eru hiti, nefrennsli og þurr hósti. Í kjölfar BPIV3 sýkingar geta komið önnur smitefni, sem valda mun alvarlegri einkennum,“ segir í tilkynningu MAST um veiruna.

Greindist fyrst síðasta haust

BPIV3 greindist í fyrsta sinn snemma haustið 2022 á einum bæ á Norðurlandi. Þar höfðu kýr verið veikar af veiruskitu, en voru á sama tíma með einkenni frá öndunarfærum sem ekki pössuðu við hina venjulegu sjúkdómsmynd veiruskitu.

Í tilkynningu MAST segir að kýrnar hafi verið að veikjast af skitu í annað sinn á einu ári, sem sé óvanalegt, og urðu þær mun veikar í seinna skiptið og sýndu einkenni frá öndunarfærum á sama tíma. Um var að ræða þurran hósta, mæði við áreynslu og blóðnasir. Einkennin fóru yfir allt fjósið en minna virtist vera um blóðnasir hjá kálfunum. 

Sex sýni voru tekin úr sex kúm og kom í ljós að fimm voru jákvæð hvað varðar mótefni gegn BPIV3.

Væg einkenni

Þegar ofangreind niðurstaða barst var ekki vitað hvort um væri að ræða einstakt tilfelli eða hvort veiran væri dreifð í kúastofninum. Veiran veldur oftast vægum einkennum og sýking getur því hafa farið það dult að ekki hafi orðið vart við hana. Helst er álitið að BPIV3 veiran hafi náð sér á strik á umræddum bæ vegna þess, að hún var til staðar í gripahópnum og að kýrnar höfðu orðið fyrir ónæmisbælingu við ítrekaðar sýkingar með coronaveirunni sem veldur veiruskitu.

Í kjölfarið voru rúmlega 70 sýni send til rannsóknar síðasta haust og niðurstaða þeirrar rannsóknar var að veiran finnst nú þegar í öllum landshlutum. Er því litið svo á að um sé að ræða dulda, landlæga sýkingu sem almennt er ekki að valda veikindum í nautgripum hérlendis. Miðað við umrætt tilvik virðist ákveðin ónæmisbæling vera forsenda þess að sýkingin magnist upp og fari að valda sjúkdómseinkennum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert