Arnar Már skipaður ferðamálastjóri

Arnar Már Ólafsson.
Arnar Már Ólafsson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, hefur skipað Arnar Má Ólafsson til að gegna embætti ferðamálastjóra.

Arnar Már hefur áratuga rekstrar- og stjórnunarreynslu í ferðaþjónustu og starfaði síðast sem leiðtogi markaðsmála hjá Icelandia. Hann er með meistaragráðu á sviði alþjóðamarkaðs- og ferðamálafræða frá Université de Savoie, að því er segir í tilkynningu.

Arnar Már starfaði áður um árabil hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum og Iceland Rovers ásamt því að hafa starfað sem leiðsögumaður í tugi ára. Þá hefur hann starfað sem kennari í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, lektor og brautarstjóri ferðamálafræði við Háskólann á Akureyri og forstöðumaður Ferðamálaseturs Íslands.

Umsækjendur um starfið voru 14 en einn umsækjenda dró umsókn sína til baka.

„Skipuð var hæfnisnefnd sem mat tvo umsækjendur hæfasta til að gegna embætti ferðamálastjóra. Að loknum ráðningarviðtölum ráðherra var það heildstætt mat að Arnar Már Ólafsson stæði öðrum umsækjendum framar, sakir umfangsmeiri reynslu af árangursríkri stjórnun, hagnýtrar og fjölbreyttrar reynslu á sviði ferðamála, yfirgripsmikillar þekkingar og menntunar ásamt skýrrar sýnar á stefnumótandi verkefni Ferðamálastofu,“ segir í tilkynningunni.

Skipunin er til fimm ára samkvæmt meginreglu um skipan forstöðumanna ríkisstofnana. Arnar Már mun taka við embætti ferðamálastjóra hinn 1. mars næstkomandi. Fram að því mun Elías Bj. Gíslason verða starfandi ferðamálastjóri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert