Dómstólar skeri úr um lögmæti tillögunnar

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands.
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framkvæmdarstjórn Starfsgreinasambandsins (SGS) telur brýnt að dómstólar skeri úr um lögmæti miðlunartillögu í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins (SA) sem embætti Ríkissáttasemjara lagði fram í gær. 

Stjórnin telur ákvörðunina að leggja fram tillöguna hafa verið ótímabæra og því nauðsynlegt að dómstólar skeri úr um hvort hún sé á rökum reist á þessum tímapunkti og í anda laganna. 

Enda er um að ræða mikilvægt hagsmunamál fyrir verkalýðshreyfinguna í heild sinni sem getur skapað hættulegt fordæmi til framtíðar,“ segir í ályktun frá framkvæmdastjórninni. 

Mikilvægt er að samningsaðilar fái ætíð fullt tækifæri til að ganga frá kjarasamningi án svo alvarlegra inngripa ríkissáttasemjara og telur framkvæmdastjórn SGS það tækifæri ekki hafa verið fullnýtt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert