Mikil bugun í Leifsstöð í dag

Öllum flugferðum Icelandair var aflýst í dag og flestum öðrum ferðum frestað, sumum um um heilu og hálfu sólarhringana.

Fáir voru á ferli í flugstöð Leifs Eiríkssonar í morgun þegar mbl.is kíkti við en þeir sem í biðsalnum sátu höfðu mörg hver beðið í fleiri klukkustundir vegna tafa á flugi. Þá var fyrirséð að fá, ef einhver flugi, færu í loftið fyrr en seinni partinn. 

Jillian og Carol voru þó í ágætis skapi þegar þær ræddu við mbl.is. Þær höfðu lagt af stað út úr húsi um klukkan hálf fimm í morgun og ekki fengið tilkynningu um frestun á morgunflugi sínu til Manchester fyrr en þær voru komnar á flugvöllinn. 

Þær sögðu þó starfsfólk vera vingjarnlegt en bekkina á Leifsstöð mega vera þægilegri.

Farþegar hafa þruft að bíða frá því snemma í morgun …
Farþegar hafa þruft að bíða frá því snemma í morgun og fyrstu flug fara ekki fyrr en seinni partinn. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert