Hækkar um 50 milljarða

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdarstjóri Betri Samgangna,við …
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Davíð Þorláksson, framkvæmdarstjóri Betri Samgangna,við undirritun viljayfirlýsingar síðasta sumar. Ljósmynd/Aðsend

Nú er áætlað að kostnaður við nýjan samgöngusáttmála verði rúmlega 170 milljarðar en það er um 50 milljörðum meira en upphaflega var áætlað.

Kostnaður við stofnvegi eykst úr 52,3 milljörðum í 85,4 milljarða og munar þar mest um að framkvæmdir við Sæbraut eru taldar kosta 15 milljörðum meira en áður var áætlað.

Þá fer kostnaður við borgarlínu úr 49,6 milljörðum í 68,6 milljarða. Það skýrist fyrst og fremst af fyrsta áfanga en kostnaðarmat áfanga 2-6 er skemmra á veg komið. Kostnaður Betri samgangna af fyrsta áfanga fer úr 17,1 í 21,3 milljarða. Við það bætist kostnaður sveitarfélaganna og kostar áfanginn þá alls 28,14 milljarða.

Tugir milljarða í stokka

Liður í því að greiða fyrir umferð og stytta ferðatíma á höfuðborgarsvæðinu er að leggja götur í stokk.

Ný kostnaðaráætlun Betri samgangna bendir til að samanlagður kostnaður við að setja hluta Miklubrautar, Hafnarfjarðarvegar og Sæbrautar í stokk geti numið rúmum 54 milljörðum króna.

Rætt er við Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóra Betri samgangna, í Morgunblaðinu í dag en fyrirtækið var stofnað af ríkinu og sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu.

Davíð leggur áherslu á að kostnaður Betri samgangna hafi ekki hækkað jafn mikið og heildartölurnar gefi til kynna. Bæst hafi við verkefni af hálfu sveitarfélaganna sem verði unnin samhliða þessari uppbyggingu.

Fyrsti áfangi borgarlínu er talinn kosta rúma 28 milljarða.
Fyrsti áfangi borgarlínu er talinn kosta rúma 28 milljarða. Ljósmynd/Betri samgöngur
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert