Launareiknivél ríkissáttasemjara komin í loftið

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari.
Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ríkissáttasemjari hefur opnað upplýsingavef um miðlunartillögu í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins á vef sínum. 

Á vefnum er reiknivél þar sem félagsmenn Eflingar geta mátað sig inn í og fengið upplýsingar um hvaða launahækkanir felast í miðlunartillögunni og hvaða afturvirku hækkanir koma til að lágmarki, verði hún samþykkt.

Greint er frá því á vefnum að atkvæðagreiðsla muni hefjast þegar Efling hefur skilað inn kjörgögnum til þess sem sér um kosninguna. 

Það hefur Efling þó ekki enn gert. 

Svona lítur reiknivélin út.
Svona lítur reiknivélin út. mbl.is/Skjáskot
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert